About this role
Mótaðu framtíðina
Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs. Hjá okkur er sérhver starfsmaður liðsmaður, hugmyndasmiður og þátttakandi í að móta framtíðina.
Við leitum að öflugum og reyndum einstaklingi í starf öryggissérfræðings í umhverfis-, heilbrigðis- og öryggisteymi. Öryggissérfræðingur stuðlar að góðri öryggis- og heilbrigðismenningu með leiðsögn, ráðgjöf, þjálfun, fræðslu, og eftirfylgni.
- Almennt um starfið
Markmið og tilgangur starfs
Styðja kjarnafeli í innleiðingu öryggis- og heilsumenningar ásamt því að veita stuðning, ráðgjöf og leiðsögn er kemur að öryggismálum
Verksvið eða meginverkefni starfsins
· Þekkja öryggiskröfur fyrirtækisins til hlítar
· Stuðla að því að öryggisstjórnkerfi fyrirtækisins (ISO 45001) sé virkt og að fyrirtækið starfi samkvæmt lögum og reglugerðum er varða öryggismál.
· Leiðbeina / þjálfa starfsmenn í öryggismálum.
· Ber ábyrgð á uppfærslu og viðhaldi öryggismælikvarða og virk þátttaka á daglegum DMS1 og DMS2 fundum
· Þátttaka í starfi og stefnumótun umhverfis-, heilsu- og öryggisteymis.
· Vera fyrirmynd í notkun á öryggisbúnaði og í fylgni öryggisreglna
· Tryggja góð samskipti við öryggissérfræðinga hjá móðurfélaginu og miðlar upplýsingum er varða öryggismál frá móðurfélaginu innan Fjarðaáls.
· Taka þátt í rótargreiningum atvika eftir því sem við á
· Ber ábyrgð á neyðarviðbrögðum á svæði Fjarðaáls ásamt samskiptum við slökkvilið og verktaka sem sér um öryggisgæslu.
· Ber ábyrgð á uppfærslu neyðaraðgerðaáætlana og að æfingar í neyðaraðgerðum séu framkvæmdar á öllum svæðum.
· Umsjón með MES atvikaskráningakerfi. Rýni UHÖ atvika og úttekta á öllum starfssvæðum.
· Ýmis verkefni sem til falla og snerta öryggi starfsmanna og verktaka
Ábyrgð í starfi
· Hefur yfirsýn yfir öryggiskröfur Alcoa og hvort Alcoa Fjarðaál sé að standast þær kröfur
· Að öryggiskröfum Alcoa sé framfylgt ásamt íslenskum og evrópskum lögum og reglugerðum er varða öryggismál
· Yfirsýn og þátttaka í rótargreiningum atvika og slysa sé þess óskað
- Grunnkröfur
Menntun og/eða réttindi sem krafist er
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla sem krafist er
Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á sviði öryggismála.
Hæfni sem krafist er
Sterk öryggisvitund, skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og mannleg samskipti
Samskiptafærni og samstarfsaðilar í starfinu
Náin samskipti við framkvæmdastjóra og forstjóra Fjarðaáls. Góð samskipti við alla starfsmenn fyrirtisins og verktaka. Ráðgefandi vegna þjálfunar starfsmanna og verktaka í öryggismálum.
Ytri tengsl eiga við um samskipti við verktaka sem sinna öryggisgæslu á starfssvæði Fjarðaáls, verktaka sem
Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.
Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristmundsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið [email protected]
Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Hægt er að sækja um starfið á Alcoa.is.
Umsóknarfrestur er til og með 20. desember
Umsóknum verður svarað eftir hátíðar.
Um starfsstöðina
Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði er eitt nútímalegasta og tæknivæddasta álver í heimi, og það er til fyrirmyndar hvað varðar umhverfisvernd. Álver Fjarðaáls er það stærsta á Íslandi með framleiðslugetu allt að 360.000 tonn af áli á ári. Starfsmenn okkar vinna saman að því að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu og fjölskylduvænt vinnuumhverfi með áherslu á náið samstarf við nærsamfélagið og hagsmunaaðila.
Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Þetta er staður þar sem þú hefur vald til að gera þitt besta, vera þú sjálf/ur sjálf og upplifa sanna tilfinningu fyrir því að tilheyra. Slástu í hópinn og mótaðu starfsferil þinn með okkur!
Vinnan þín. Veröldin þín. Mótaðu þau til betri vegar.