About this role
Mótaðu framtíðina
Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs. Hjá okkur er sérhver starfsmaður liðsmaður, hugmyndasmiður og þátttakandi í að móta framtíðina.
Upplýsingatæknisérfræðingur (Iðnstýringar)
Við leitum að öflugum einstaklingi til starfa við forritun, þróun og rekstur iðnstýringa. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni tengd sjálfvirkni, PLC-forritun og skjámyndakerfum fyrir framleiðslu.
Við vinnum aðallega með Rockwell Automation / Allen-Bradley búnað og lausnir og er reynsla af því umhverfi mikill kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Forritun, þróun og viðhald PLC-iðnstýringa
- Þróun og viðhald HMI- og SCADA-skjámyndakerfa
- Hönnun, prófunir og innleiðing nýrra lausna og virkni
- Bilanagreining, rekstur og endurbætur á stýri- og sjálfvirknikerfum
- Umsjón með högun, skjölun og stöðlun iðnstýrikerfa
- Þátttaka í og verkefnastjórnun tæknilegra verkefna og umbóta
- Greining og úrvinnsla gagna úr framleiðslukerfum
- Tæknileg ráðgjöf og stuðningur við notendur
- Samstarf við framleiðslu, viðhald og aðrar tæknigreinar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla á sviði sjálfvirkni, rafmagns-, tölvu- eða iðntækni eða sambærilegu sviði
- Þekking eða reynsla af PLC-forritun og iðnstýringum
- Reynsla af Rockwell Automation / Allen-Bradley búnaði og hugbúnaði er kostur
- Þekking á iðnaðarnetum og samskiptum stýrikerfa er kostur
- Góð hæfni til bilanagreiningar og lausnar tæknilegra vandamála
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og góð hæfni til teymisvinnu
- Góð samskiptafærni og þjónustulund
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilsa eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.
- Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.
Frekari upplýsingar veita
Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifæri til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í.
Til að sækja um starfið er hægt að skoða nánar og senda beiðni.
Um starfsstöðina
Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði er eitt nútímalegasta og tæknivæddasta álver í heimi, og það er til fyrirmyndar hvað varðar umhverfisvernd. Álver Fjarðaáls er það stærsta á Íslandi með framleiðslugetu allt að 360.000 tonn af áli á ári. Starfsmenn okkar vinna saman að því að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu og fjölskylduvænt vinnuumhverfi með áherslu á náið samstarf við nærsamfélagið og hagsmunaaðila.
Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Þetta er staður þar sem þú hefur vald til að gera þitt besta, vera þú sjálf/ur sjálf og upplifa sanna tilfinningu fyrir því að tilheyra. Slástu í hópinn og mótaðu starfsferil þinn með okkur!
Vinnan þín. Veröldin þín. Mótaðu þau til betri vegar.