Log in
All jobs
J

Shipping and Logistics Coordinator

Jbtm
IS - Gardabaer Posted Oct 30, 2026
Full-timeOn-site

About this role

Shipping and Logistics Coordinator

JBT Marel leitar að kraftmiklum og jákvæðum liðsfélaga í teymi sem sér um sendingar og flutninga varahluta. Teymið sinnir fjölbreyttum verkefnum tengt varahlutum og sér um allar hraðsendingar til viðskiptavina.

Allt nýtt starfsfólk fær viðeigandi þjálfun. Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi.

Um er að ræða tímabundna stöðu til 1 árs, með möguleika á framhaldi.

Helstu verkefni

  • Afgreiðsla varahlutapantana
  • Pökkun varahluta
  • Samskipti við innri viðskiptavini og flutningsaðila
  • Reikningagerð og samþykkt reikninga
  • Undirbúningur útflutningsskjala
  • Skráning sendinga

Hæfniskröfur

  • Reynsla af útflutningi og/eða tollamálum er skilyrði
  • Þekking og reynsla af SAP er mikill kostur
  • Mjög góð almenn tölvukunnátta
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
  • Góð samskiptafærni og áhugi á teymisvinnu
  • Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund
  • Jákvæð og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Áhugi á stöðugum umbótum

Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og bakgrunni, til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember 2026. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.

Sótt er um starfið á heimasíðu JBT Marel.

Your next opportunity starts here

Prepare, apply, track, interview and get hired — all from one platform, with AI in your corner.

Download app

Or sponsor Premium for someone who's job hunting →